Saumaklúbbskvöld í kvöld

Jæja þá ákváðum við systurnar og mamma að halda saumaklúbb á tveggja vikna fresti, semsagt þegar ég er á dagvakt,ég er rosalega spennt yfir þessu því að ég hef verið að hugsa uppá síðkastið hvað mig langar til þess að fara að prjóna mér peysu! Ég var einu sinni svo aktíf í því að prjóna en eins og svo margt annað dó sá áhugi út þangað til núna, ég er búin að vera að googla og googla eftir uppskriftum og aðferðum því að ég er orðin svolítið ryðguð í þessu öllu saman Wink
Svo langar mig líka alveg rosalega til þess að læra að hekla Smile

 Ef að þið eigið einhverjar fallegar uppskriftir af flottum ullarpeysum eða ullarkjólum væru þið nokkuð til í að deila þeim með mér? Það væri allavegana rosalega vel þegið Wink

Jæja þá segi ég bara takk og bless 

Siljan Heart

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband